|
01.01.2008 02:26:04 / Eygló
Kæru Jóhanns-garar og makar þeirra. Við óskum ykkur öllum gleðilegs nýjárs og þökkum fyri allar góðu samverustundirnar á nýliðnu ári. Áramótakveðjur frá Álmskógum 11, Akranesi Eygló og Þorgils
»
19.12.2007 10:08:01 / Bylgja
Kæru ættingjar og vinir nær og fjær. Sendum okkar bestu jólakveðjur til ykkar allra, koss og knús. Megi nýtt ár færa ykkur gleði og gæfu. Jólakveðja Bylgja, Jóhann, Ragnheiður og Óskar Daði. Nóra sendir mjá mjá kveðjur. 
»
16.11.2007 14:24:13 / Bylgja
Þeir sem ekki vilja inniskó í jólagjöf geta í staðinn fengið þessa típu. Hef þá til sölu og eru þeir ekki dýrir. Er þetta ekki það sniðugasta af öllu sem fundið hefur verið upp í veröldinni??? 
ÉG VIL LÍKA KVARTA YFIR ÞVÍ AÐ ÉG SÉST EIGINLEGA EKKI NEITT Á MYNDINNI HÉR EFST Á SÍÐUNNI 
»
29.10.2007 11:52:02 / Bylgja
Þá er komið að hinu árlega jólaföndri Bylgju elskurnar mínar og verður það haldið þann 17. nóvember að Holtási 3 Garðabæ. Best að byrja ekki seinna en snemma...matur í lokin og kannski heitt vatn í potti og einhverju öðru...er ekki gin jóladrykkur Hef tillögu að föndri sem er upplagt að búa til og gleður ættingja og vini. Er ekki erfitt né dýrt og maður er fljótur að því. Læt fylgja með snið og leiðbeiningar…
Þú þarft:
Fjögur Maxi dömubindi til að búa til eitt par Tvö eru notuð sem sólar Hinum tveimur er vafið utanum tærnar Límið endana undir sólana
Skreytið með því sem hugurinn girnist, silkiblómum, bjöllum, greni eða eða sætum jólasveinum  

- Þessir inniskór eru mjúkir og þrifalegir
- Þeir eru stamir, það gerir límröndin á sólanum
- Ilmefnin í þeim gera fæturna alltaf ferska
- Nú þarf ekki lengur að beygja sig til að þurrka upp af gólfinu
»
27.08.2007 11:41:53 / Bylgja
Heilir og sælir Garar til sjávar og sveita Þannig er að við mæðgurnar (ég og Ragnheiður) erum búnar að kaupa okkur flugmiða til Köben þann 4. október næstkomandi. Við förum síðan heim miðvikudaginn 10. okt. Ég er að fara á Norrænan fund sem dönsku hjartasamtökin Hjertaforeningen halda þetta árið þann 8. og 9. október. Við mægður ætlum að slappa af og dóla okku og fara í búðir og hafa það huggulegt saman þessa daga. Væri gaman að hitta sem flesta eða alalvega einhverjar. Vildi bara koma þessu á framfæri Kveðja Bylgja
»
27.08.2007 11:31:16 / Anna Þóra
Hún Jónína okkar í Danaveldi eignaðist lítinn fallegan prins þann 7. júní 2007 sem hefur fengið nafnið Patrekur!!.- Eins og sjá má er þetta algjör engill og fellur fullkomlega inn í mynd okkar Garibalda 
Elsku Jónína, Óskar, Jói og Petrína Pála Innilegar hamingju óskir með nýjasta fjölskyldumeðliminn. Hafið það rosalega gott og hlökkum til að sjá ykkur...vonandi sem fyrst!! Kveðjur af klakanum! Anna Þóra og Co
»
02.04.2007 22:25:24 / Eygló
Enn fjölgar Gariböldum
Í morgun fæddist í Luxembourg lítil
stúlka. 3330 gr. og 52 cm. Hún fékk nafnið Aldís
Anna. Elsku Sigrún, Bjössi, Eygló María og Róbert,
okkar bestu hamingjuóskir, knús og kossar
frá fjölskyldunum á Akranesi.
»
19.02.2007 00:10:33 / Eygló
Í dag kl. 14:12 fæddist Önnu Þóru og
Andra lítil prinsessa. Hún var 12 merkur og 49 cm.
Móður og barni heilsast vel.

Hún er líka komin með heimasíðu. Heimasíðan hennar
er:http://www.barnaland.is/barn/57207
Það er líka hægt að smella á hana hér til hliðar.
Lykilorðið er nafnið á heimilisdýrinu.
»
02.01.2007 01:21:01 / Eygló
Kæru ættingjar, við sendum ykkur öllum bestu óskir um gleðilegt
nýtt ár og takk fyrir þau gömlu. Vonandi verður þetta ár
hamingjuríkt og gott. Héðan frá Leynisbrautinni er allt gott að
frétta og við höfum átt yndislega daga með öll börnin okkar,
tengdabörn og barnabörn í kring um okkur. Þetta eru síðustu jólin
og áramótin okkar á Leynisbrautinni, því við fáum lóðina okkar
afhenta nú eftir helgina. Þá taka við spennandi tímar við
húsbygginguna. Við viljum að lokum skora á alla "Jóhannsgara" að
vera nú duglegir að skrifa á síðuna á nýja árinu. Kveðja, Þorgils
og Eygló
»
01.01.2007 23:09:48 / Sigurþór
Kæru ættingjar nær og fjær.
Gleðilegt nýtt ár og farsælt komandi ár.
Sigurþór, Júlla, Hrafnhildur Steinunn, Þorgils og Viðar.
»
14.11.2006 09:32:10 / Bylgja
Sælar Þar sem Anna Þóra og Júlla eru uppteknar þann 9. desmeber og
Ragnheiður á kafi í prófalestri var ég að spá hvort ykkur þætti of
seint að fresta þessu til 16. desember  bara hugmynd
»
13.11.2006 12:13:43 / Bylgja
Þá er komið að því
Hið árlega jólaföndur garibaldoskvenna verður hjá Bylgju þann 9.
desember. Mæting eins snemma og hver getur. Þætti vænt um að heyra
hverjar koma. Endum svo daginn á máltíð og aldrei að vita nema það
verði heitt vatn á góðum stað.
Kveðja
Bylgja
»
25.06.2006 21:07:03 / Sigurþór
Jæja þá er nýjasti Garinn kominn í heiminn. Hann fæddist þann
25.06.06 kl:06:07 og var 14,5 merkur og 54 cm. Sem sagt, myndar
drengur. Fæðingin gekk voða vel og mömmu heilsast vel. Hægt er að
skoða myndir með því að smella á "Heimasíða Hrafnhildar og
Þorgilsar" hér til hliðar.
Bestu kveðjur Sigurþór
»
31.05.2006 22:30:46 / Sigurþór
Silli bassi verður á Gauknum 7. og 8. júní með rosa bandi. Þetta er
svona Tribute Band til heiðurs Prince. Fer þar fremstur í flokki
bandaríkjamaður að nafni Seth Sharp.
Hann er með vefslóðina www.sethsharp.com
»
31.05.2006 09:25:09 / Sigrún
jæja kæra fjölskylda
Hvernig væri að skirfa nokkrar línur á þessa líka fínu
heimasíðu. Við hér í lúx segjum barasta allt fínt veðrið mætti vera
betra en maímánuður hefur verið sá kaldasti hér í lúx síðan 1962 að
mér er sagt. En mér sýnist þetta allt vera að koma. Ég er að fara
til Tyrklands með börnin og aupairina mína ásamt tveim vinkonum
mínum og þeirra börnum og aupairum næsta sunnudag og hlakka til að
fara í sól og hita. Húsið genur bara frekar hægt en það er búið að
hlaða allar hæðirnar og næsta skref er að setja þak á húsið en það
gerist held ég um miðjan júní, ég held við flytjum inn í janúar með
þessu framhaldi. Bubba aupairin okkar er að fara í lok júní því
miður það verður erfitt að kveðja hana hún hefur sko verið betri en
enginn. jæja ætlaði bara að skrifa nokkrar línur og hvetja ykkur
hin um að skirfa eitthvað um ykkur og ykkar svo maður geti lesið
sig til um hvað er að gerast hjá ykkur.
love you all
Sigrun
»
Síður: 1 2 3
|